Sjó úr borholu breytt hið fínasta drykkjarvatn

Sjóhreinsivél Vinnslustöðvarinnar var tengd og tekin í gagnið fyrir helgi.

Samskonar græja verður ræst hjá Ísfélaginu núna eftir helgina.

Willum Andersen, tæknilegur framkvæmdastjóri VSV, og Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs VSV, skáluðu í fyrstu sopunum og mæltu mjög með þessum hreinsaða sjó til drykkjar.

Framkvæmdastjóri VSV, Sigurgeir B. Kristgeirsson, játaði fúslega að hafa verið býsna efins um að það sem úr krananum rynni myndi reynast sæmilega drykkjarhæft en lýsti strax yfir að vatnið væri frábærlega gott!

Sjónum er dælt upp úr 20 metra djúpri borholu, hann hreinsaður með síum og rennur sem hreint drykkjarvatn í geyma til að nota síðan í fiskvinnslunni.

Við vatnsframleiðsluna fellur til saltur lögur, saltpækill, sem mögulega er verðmæt hliðarafurð til notkunar í saltfiskvinnslu VSV. Sýni verða tekin og þau rannsökuð frekar með þetta í huga á næstu dögum.

Upp í hugann kemur skilvinda á sveitabæjum fyrr á tímum, tækni sem beitt var til að skilja að rjóma og áfir í mjólk. Þetta gerðist með miðflóttaafli en vatn og salt er aðskilið með síum í græjum Vinnslustöðvarinnar og Ísfélagsins.

Vinnslustöðin keypti fyrr í vetur þrjá gáma með sjóhreinsibúnaði og seldi Ísfélaginu einn þeirra. Ef allir þrír gámarnir væru virkjaðir samtímis, og samskonar búnaður Laxeyjar líka, færi það langt með að anna allri vatnsþörf heimila og fyrirtækja í Vestmannaeyjum og það þó að uppsjávarvinnsla væri í gangi!

Gámarnir sem Vinnslustöðin keypti eru frá hollensku fyrirtæki, Hatenboer Water, sem hefur yfir 100 ára reynslu af framleiðslu búnaðar til vatnsframleiðslu og dreifingar. Willum Andersen hafði frumkvæði að því að leita að búnaðinum erlendis og semja um kaupin fyrir hönd VSV.

Búnaðurinn er rafdrifinn, notar lítinn  straum og er því ekki dýr í rekstri.

Ljósmyndir: Addi í London.

Nýjustu fréttir

Veit Inga hvað hún syngur?
Norðurinngangur við sjúkrahúsið opinn á ný
Viðhorf til bæjarstjóra í brennidepli í nýrri könnun
Vinnustofur í stað líkamsræktar?
Glacier Guys með nýtt föstudagslag
„Úttroðinn af loðnu”
Fréttapýramídar afhentir fyrir nýliðið ár
Karlar hvattir til að sýna handverk
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.