Skip undirbúin til loðnuleitar
Mynd: Óskar Pétur Friðriksson

Páll Reynisson, sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, er kominn austur á land í þeim tilgangi að búa loðnuskip til leitar og mælinga á loðnu. Á vef Síldarvinnslunnar er rætt  stuttlega við Pál og spurt hvað felist í því að gera skipin hæf til þessa verkefnis. „Það þarf að kvarða dýptarmæla skipanna en þá er næmni mælanna athuguð. Nauðsynlegt er að vita hvað mælarnir sýna svo unnt sé að meta magn loðnu sem mælist á tilteknu svæði. Gert er ráð fyrir að mælar í fjórum skipum verði kvarðaðir en skipin eru Börkur NK, Bjarni Ólafsson AK, Aðalsteinn Jónsson SU og grænlenska skipið Polar Amaroq. Það getur verið mjög mikilvægt að eiga kost á að nýta þessi skip til leitar og mælinga á loðnu auk hafrannsóknaskipanna. Þegar skipin fara í leitarleiðangra eru menn frá Hafrannsóknastofnun um borð til að vakta mælana og fylgjast með þeim upplýsingum sem þeir gefa. Loðnuskip hafa áður verið nýtt til mælinga. Síðasta vetur fóru loðnuskipin Börkur NK, Polar Amaroq, Aðalsteinn Jónsson SU, Heimaey VE og Ásgrímur Halldórsson SF í leiðangra á tímabilinu desember og fram í febrúar og nýttust vel þó ekki tækist að finna nægilegt magn af loðnu til að heimila veiðar,“ sagðo Páll Reynisson.

Af vef Síldarvinnslunnar

Nýjustu fréttir

Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Með fullfermi eftir örstutta túra
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
40 ára aldursmunur á vinningshöfum
Hvert viljum við stefna?
Margrét Rós: „Ég er hvorki í fýlu né lít á mig sem tapara“
Slá ekki slöku við
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.