Í morgunn fór fram hið árlega skólahlaup hjá Grunnskóla Vestmannaeyja. Skólahlaupið hefur farið fram í grunnskólum landsins óslitið frá árinu 1984. Allir nemendur GRV hlupu þriggja kílómetra leið eða ÍBV hringinn. Hlaupið hófst klukkan 10:00 með skemmtilegri upphitun frá Önnu Lilju Sigurðardóttur. Eftir hlaupið fengu þátttakendur ávexti og vatn. Fyrstir í mark voru félagarnir Elmar Erlingsson og Andrés Marel Sigurðsson á tímanum þrettán mínútur og þrjár sekúndur.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.