Skora á bæjarráð að banna lundaveiði í Stórhöfða

Ferðamálasamtök Vestmannaeyja skora á bæjarráð að friða Stórhöfða eða alfarið banna lundaveiðar þar. Þangað beinum við þeim tugþúsundum ferðamanna sem koma til Eyja til þess að sjá lundann í sínu náttúrulega umhverfi enda búið að byggja þar lundaskoðunarhús sem almenningur hefur aðgang að. Í Stórhöfða er fylgst með varpi, við sjáum lundapysjurnar vaxa og þar eru einnig gerðar mælingar og rannsóknir sem tengjast lundanum. Við erum að markaðssetja Vestmannaeyjar sem áfángastað sem er með stærstu lundabyggð í heimi í þeim tilgangi að laða að ferðamenn. Það er hreinlega úr takt að beina fólki þangað í þessum tilgangi þegar á sama tíma eru veiðimenn að veiða fuglinn og snúa hann úr neðar í brekkunni.

Ferðamálasamtök Vestmannaeyja

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.