Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Á námskeiðinu fá þátttakendur fræðslu og þjálfun í viðbrögðum við slysum og skyndilegum veikindum.

Viska verður með skyndihjálparnámskeið laugardaginn 21. mars næstkomandi. Námskeiðið fer fram frá kl. 12:00 til 16:00 og er ætlað öllum sem vilja efla þekkingu sína í skyndihjálp.

Á námskeiðinu fá þátttakendur fræðslu og þjálfun í viðbrögðum við slysum og skyndilegum veikindum, en slík kunnátta getur skipt sköpum þegar á reynir.

Að námskeiði loknu fá þátttakendur skírteini vottað af Rauða krossi Íslands sem gildir í tvö ár.

Leiðbeinandi námskeiðsins er Egill Aron Gústafsson og fer það fram hjá Visku.

Nýjustu fréttir

Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.