Sókn í sátt við umhverfið

Með aukinni uppbyggingu og ásókn í land þurfum við að svara ýmsum spurningum varðandi landnotkun. Við þurfum að einbeita okkur að því að ganga vel um landið okkar svo við getum stolt skilað því af okkur til næstu kynslóða.

Við skulum gæta okkar á því að umræðan um umhverfismál festist ekki á þeim villigötum sem hún er um þessar mundir. Stærsta verkefni okkar í umhverfismálum er að hindra jarðvegsrof. Landgræðsla ríkisins í Gunnarsholti hefur unnið gríðarlega gott starf í gegnum tíðina en við skulum gæta að því að styðja þá starfsemi og efla og Sjálfstæðisflokkurinn mun hér eftir sem hingað til leggja metnað í það verk. �?á er Hekluskógarverkefnið mjög áhugavert og kemur til með að skila miklu til framtíðar.

Ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs sem er rúmir 15 þúsund ferkílómetrar að stærð. �?jóðgarðurinn mun hafa mikil áhrif á eflingu ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi.

Við megum ekki gleyma því að Ísland er hluti af stærri heild. �?ekking okkar og reynsla á sviði umhverfis- og orkumála er eftirsótt. Í þeirri sérþekkingu felast mikil sóknarfæri á sviði rannsókna- og menntamála.

Við sjálfstæðismenn ætlum að sækja fram í umhverfismálum og nýta til þess okkar sérþekkingu. Íslendingar eru í fararbroddi á heimsvísu hvað varðar notkun endurnýtanlegara orkugjafa. Við getum verið stolt af stöðu okkar í þessum málaflokki á alþjóðavísu. Hingað líta menn eftir fyrirmyndum – hingað líta menn eftir þekkingu.
Til þess að ná árangri á sviði orkumála, samhliða því að viðhalda öflugu velferðarkerfi, háu menntunarstigi, lágu atvinnuleysi og einum hæstu meðaltekjum sem um getur í heiminum getum við ekki staðið fyrir einhvers konar allsherjarsöðvun og stöðnun í nokkur ár.

Atkvæði greitt Sjálfstæðisflokknum er því atkvæði greitt sókn í sátt við náttúruna.

Höfundur skipar 4. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.