Sporin hræða
Páll Magnússon

Ég deili áhyggjum með öllum öðrum Eyjamönnum sem í ljósi reynslunnar eru uggandi yfir því að nú hefur Vegagerðin samið við Björgun um dýpkun Landeyjahafnar. Ég sendi Vegamálastjóra eftirfarandi bréf 22. október s.l., þegar ljóst var að Björgun hafði átt lægsta tilboðið í verkið:

”Ég hef vaxandi áhyggjur af því sem við ræddum um daginn, þ.e.a.s. fyrirhuguðum samningum við Björgun um dýpkun í Landaeyjahöfn á grundvelli niðurstöðunnar í útboðinu sem farið var í.

Mér finnst reyndar ýmislegt orka tvímælis við útboðið sjálft.

Í fyrsta lagi er verðið látið vega 65% í mati á tilboðum en tæknilegi þátturinn 35%. Með öðrum orðum: verðið ræður meiru en tæknileg geta viðkomandi til að framkvæma verkið.

Í öðru lagi er gert ráð fyrir að dýpkun til opnunar Landeyjahafnar að vori hefjist á sama tíma og verið hefur undanfarin ár. Með öðrum orðum: Vegagerðin sjálf virðist ekki gera ráð fyrir að siglingar í Landaeyjahöfn geti hafist fyrr á vorin með nýju ferjunni en verið hefur með þeirri gömlu. Það hljóta að teljast mikil vonbrigði.

Í þriðja lagi virðist ekki vera neinn áskilnaður um afkastagetu í útboðinu, þ.e. hversu miklu er hægt að afkasta í dýpkun pr. tímaeiningu. Með öðrum orðum: Dýpkun til opnunar á höfninni gæti t.d. tekið eina viku – nú eða sex vikur – eftir því hvað verktakanum hentaði.

Í fjórða lagi virðist ekki vera gert ráð fyrir dagsektum eða öðrum viðurlögum ef frátafir verða t.d. vegna bilana í tækjakosti verktakans eða af öðrum ástæðum af hans völdum.

Brýnustu spurningarnar eru þessar: verður ekki örugglega gerð skilyrðislaus krafa til verktakans, áður en gengið verður til samninga, að hann sýni fram á með óyggjandi hætti að hann hafi yfir að ráða þeim tækjakosti og þeirri tæknilegu getu og þekkingu sem þarf til að sinna verkinu með viðunandi hætti? Verður ekki örugglega gerð sú krafa til verktakans að hann ráði yfir þeim afköstum að geta opnað höfnina innan hæfilegra tímamarka frá því að dýpkun hefst? Verður ekki örugglega gerð sú að krafa að verktakinn geti sýnt fram á að hægt sé að bregðast við bilunum í tækjakosti hratt og örugglega svo frátafir af þeim sökum verði ekki óeðlilegar?

Af öllu þessu hafa Eyjamenn þungar áhyggjur – eins og kom berlega fram á fundi þingmanna kjördæmisins með bæjarstjórn Vestmannaeyja í nýliðinni kjördæmaviku. Og það er ekki að ástæðulausu. Þegar það fyrirtæki sem nú á að semja við sinnti dýpkun fyrir nokkrum árum voru þessi mál í ólestri. Tækjakostur var lítill og lélegur, afköst lítil og bilanir og frátafir tíðar. Eftir því sem næst verður komist hefur tækjakostur fyrirtækisins jafnvel versnað frá því sem þá var. Eftir að núverandi dýpkunaraðili tók við hefur verið allur annar bragur á þessu. Tækjakostur miklu betri og afkastameiri, frátafir vegna bilana miklu fátíðari og getan til að bregðast við þeim miklu meiri.

Því verður ekki trúað að loksins þegar ný ferja kemst í gagnið ætli Vegagerðin að standa þannig að dýpkunarmálum að allt fari í óefni aftur”.

Vegamálastjóri svaraði mér og sagði að þess yrði freistað í samningum við nýjan dýpkunaraðila að tryggja að öll þau atriði sem ég tiltók hér fyrir ofan yrðu í lagi. Það á eftir að koma í ljós hverning tekst til með það.

Enn og aftur sitjum við Eyjamenn upp með spurningar sem reynslan ein getur svarað: Mun nýja skipið virka eins og vonir standa til? Mun nýr dýpkunaraðili geta haldið höfninni opinni með viðunandi hætti? Mun yfirtaka bæjarins á rekstri Herjólfs takast á þann hátt sem að er stefnt? Mun opinbera hlutafélagið um reksturinn uppfylla þær vonir sem til þess eru gerðar?

Vonandi mun reynslan svara öllum þessum spurningum játandi. Á þessum tímapunkti  getum ekki annað en beðið bjartsýn eftir þeim dómi; og vakað yfir öllum þeim atriðum sem geta haft áhrif á þá niðurstöðu.

Páll Magnússon
Alþingismaður

Nýjustu fréttir

Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga lét til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.