Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði grein fyrir stöðu loðnuleitar á ríkisstjórnarfundi í gær. Nýafstaðinn könnunarleiðangar á vegum Hafrannsóknarstofnunar sýnir betra ástand stofnsins en fyrri mælingar bentu til, en gefur þó að mati Hafrannsóknastofnunar ekki tilefni til að leggja til útgáfu kvóta.
Á fundinum gerði Kristján Þór grein fyrir því að rannsóknaskipið Árni Friðriksson myndi halda áfram leit út af Austfjörðum og um eða eftir helgi munu fimm skip frá útgerðum uppsjávarskipa einnig koma inn í leitina. Aldrei áður hafa svo mörg skip tekið þátt í loðnuleit. Fyrirhugað er að mælingin nái yfir allt það svæði sem ætla má að fullorðin loðna geti fundist á á þessum árstíma. Gera má ráð fyrir að sú mæling taki allt að 10 daga.
Ljóst er að ástand loðnustofnsins hefur verið slæmt um nokkurt skeið og útlitið er ekki gott með tilliti til veiða í vetur. Þó er ekki rétt að afskrifa mögulegar veiðar meðan leit er enn í gangi. Varðandi útlitið á næstu vertíð þá er það mun bjartara. Í ljósi mælinga á ungloðnu síðastliðið haust hefur Alþjóðahafrannsóknaráðið lagt til veiðar á tæplega 170 þúsund tonnum af loðnu á vertíðinni 2020/2021. Sú ráðgjöf verður endurskoðuð að loknum mælingum í september 2020.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.