Á fundi bæjarráðs í vikunni, komu samgöngumál mikið við sögu. Í bókun ráðsins segir að óvenju miklar frátafir í siglingum Herjólfs til �?orlákshafnar hafi verið það sem af er ári. Tilfinning margra þjónustuþega Herjólfs er sú að frátafir í siglingum Herjólfs til �?orlákshafnar hafi aukist á seinustu árum. Vegna umræðunnar vill bæjarráð lýsa yfir fullum stuðningi við ákvarðanir skipstjóra Herjólfs hverju sinni og hvetja til þess að áfram verði haft að leiðarljósi að ferð sé eingöngu felld niður með öryggi farþega, áhafnar, farms og skips að leiðarljósi. �?llum má enda ljóst vera að í hvert skipti sem ferð er felld niður veldur það umtalsverðu tjóni fyrir íbúa og atvinnulíf. Bæjarráð felur bæjarstjóra enn fremur að kalla eftir upplýsingum um fjölda þeirra ferða sem fallið hafa niður í siglingum Herjólfs í �?orlákshöfn seinustu áratugina.
Bæjarráð ræddi enn og aftur um þá stöðu sem nú er uppi í samgöngum. Staðan nú er illu heilli nákvæmlega sú sama og hún var fyrsta veturinn sem Herjólfur sigldi í Landeyjahöfn. Dýpi er of lítið og skipið sem ætlað er að sigla þangað bæði of djúprist og það óheppilegt til siglinga í Landeyjahöfn. Eðlilega þyngist umræðan með hverju árinu og vonleysi grípur um sig. Komið hafa fram á opinberum vettvangi alvarlegar ávirðingar á hendur samgönguyfirvalda. Nú seinast fullyrti skipstjóri á Lóðsbát Vestmannaeyjahafnar að straumur við hafnarstæði Landeyjahafnar hafi ekki verið rannsakaður né heldur hafi verið gerðar rannsóknir á öldufari þar. Sérstaklega kveður hann fast að með ávirðingar um að áhrif suðvestan og suðaustanöldu hafi ekki verið rannsökuð. Bæjarráð telur slíkar ávirðingar mjög alvarlegar og krefst þess að það fái tafarlaust svar við því hvort það geti virkilega staðist að áhrif straums við Landeyjahöfn hafi ekki verið rannsakaður og að engar rannsóknir hafi verið gerðar á öldufari, eins og fullyrt í grein skipstjóra á Lóðsbát Vestmannaeyjahafnar.
�?á fól bæjarráð bæjarstjóra að láta þegar vinna vandaða skoðanakönnun meðal bæjarbúa þar sem m.a. verður kallað eftir áliti þeirra á samgöngum á sjó og framtíðarmöguleikum.