Stærsta björgun Íslandssögunnar – 1973 – Allir í bátana
Ein fjölda mynda sem Sigurgeir Jónasson tók á gosnóttina.

Þess verður minnst í Eldheimum í kvöld kl. 19.30 að í dag eru 52 ár frá upphafi Heimaeyjargossins. Athöfnin verður helguð Ingibergi Óskarssyni sem á heiðurinn að verkefninu, 1973 – Allir í bátana. Þar er m.a. að finna nöfn meginþorra þeirra sem flúðu Heimaey gosnóttina og  með hvaða bát fólkið fór.  Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá og ber þar hæst opnun nýrrar síðu þar sem heimildunum sem Ingibergur hefur safnað um þessa stærstu björgun Íslandssögunnar verða aðgengilegar. Einnig verður Ingibergur heiðraður fyrir þetta þarfa verk sem verður merkilegra með hverju árinu sem líður.

Dagskráin:

Stærsta björgun Íslandssögunnar
1973 – Allir í bátana

Dagskrá 23.01.25 í Eldheimum 19:30-21:00

Ómar Garðarsson ritstjóri kynnir dagskrána.

Frosti Gíslason – 1973 Allir í bátana á Heimaslóð.

Gísli Pálsson – Heimaey og Herculaneum: Systrabæir?

Guðrún Erlingsdóttir – Konurnar gosnóttina á Heimaey 1973.

Hlé

Ásmundur Friðriksson – Þegar beljurnar á Kirkjubæ fóru í bæinn.

Ingibergur Óskarsson heiðraður: Valmundur Valmundsson formaður Sjómannasambands Íslands og Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri.

Nýjustu fréttir

Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.