Stór æfing innan og utanhafnar á morgun

Landhelgisgæslan, Umhverfisstofnun, Samgöngustofa og Vestmannaeyjahöfn verða með sameiginlega mengunarvarnaæfingu þar sem varðskipið Þór, Lóðsinn, Friðrik Jesson og björgunarbáturinn Þór verða að störfum

Æfingin fer bæði fram innan hafnar og austan við Vestmannaeyjar. Umhverfisstofnun hefur haft yfirumsjón með skipulagningu æfingarinnar sem er huti af árlegri æfingaáætlun Landhelgisgæslunnar, Samgöngustofu og Umhverfisstofnunar. Reiknað er með því að æfingin hefjist um kl. 11:30 og verði fram eftir degi þann 2. júní. Umferð um Nausthamarsbryggju verður takmörkuð og þeir sem vilja fylgjast með er bent á að fara annað hvort austur á nýja hraun eða á Kleifarbryggju.

Þessi æfing er liður í því að þjálfa starfsmenn hafnarinnar í að nýta búnaðinn sem hér er og æfa sameiginlegt viðbragð allra viðbragðsaðila ef upp kemur stórt mengunaróhapp við Vestmannaeyjar.

Dóra Björk

Hafnarstjóri Vestmannaeyjahafnar

 

Nýjustu fréttir

Eyþór leiðir eftir fyrstu tölur
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.