Stórkostlegur dagur fyrir Vestmannaeyjar
�?etta er stórkostlegur dagur sem Eyjamenn hafa lengi beðið eftir, sagði forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja, að lokinni undirritun smíðasamnings um nýjan Herjólf. �?etta kom fram í fréttum Stöðvar 2 en sýndar voru myndir frá undirritunni, sem fram fór í höfuðstöðvum Vegagerðarinnar í dag. Vísir.is greindi frá.
�?essi athöfn átti raunar að fara fram fyrir átta árum. �??Svo kom hrun. �?að var meira að segja, skilst mér, búið að draga pennana á loft,�?? sagði Hildur Sólveig Sigurðardóttir, forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja.
Og nú var loksins komið að því. Vegamálastjóri undirritaði samning við pólsku skipasmíðastöðina Crist um að smíða nýja Vestmannaeyjaferju fyrir 3,2 milljarða króna.
�??�?etta er bara stórkostlegur dagur, – dagur sem við höfum beðið mjög lengi eftir. Við bindum að sjálfsögðu miklar vonir við þessa nýju ferju,�?? sagði Hildur.
Gamli Herjólfur er orðinn 25 ára gamall en ferjan sem leysir hann af verður álíka stór en grunnristari. Hún verður jafnframt með skrúfubúnaði sem á að auðvelda skipstjórum að stýra inn í Landeyjahöfn. Vegagerðin vonast til að nýting hafnarinnar aukist um 40 prósent.
�??Hún fer vonandi frá 60 til 65 prósent, eins og hún er í dag, upp í það að vera 80 til 90 prósent,�?? sagði Sigurður Áss Grétarsson, framkvæmdastjóri siglingasviðs Vegagerðarinnar.
�??�?etta hefur auðvitað gríðarlega þýðingu fyrir okkur. �?etta hefur mikla þýðingu ekki síst fyrir hina almennu íbúa, sem hafa þá aukið ferðafrelsi.
�?etta hefur mikla þýðingu fyrir atvinnulífið. Eins og á Íslandi almennt hefur ferðaþjónustan vaxið mikið í Vestmannaeyjum þannig að við sjáum fram á að ferðaþjónustunni muni vaxa enn frekar fiskur um hrygg,�?? sagði Hildur Sólveig.
Ef áætlanir ganga eftir vonast menn til að geta boðið upp á nýja ferju á þjóðhátíð 2018.

Nýjustu fréttir

Stefnir í spennandi prófkjör hjá Sjálfstæðismönnum
Vonir vakna hjá TV á Íslandsmóti skákfélaga
Ekkert siglt í dag
Þóra Guðný og Svenni um bygginarframkvæmdina  
Gular viðvaranir víðast hvar
Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.