Strandveiðar hefjast 2. maí
Vestmannaeyjahöfn.

Fram kemur í tilkynningu frá matvælaráðuneytinu að Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um strandveiðar. Alls verða 10.000 tonn af þorski í strandveiðipottinum á þessu veiðitímabili.

Hlutfall strandveiða af leyfilegum heildarafla þorsks nemur því nú tæpum fimm prósentum sem er svipað og veiðitímabilið 2022 en þá var í fyrsta sinn svo stórum hluta leyfilegs heildarafla úthlutað til strandveiða.

Alþingi hefur nú til meðferðar frumvarp til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða vegna svæðaskiptingu strandveiða en frumvarpið var samþykkt til framlagningar af ríkisstjórn 24. febrúar sl. Matvælaráðuneytið áréttar að verði frumvarpið að lögum kann að verða nauðsynlegt að gera breytingar á reglugerðinni fyrir árið 2023 til samræmis við lagasetningu Alþingis.

Komandi strandveiðisumar er það fimmtánda frá því strandveiðum var komið á, en strandveiðar eru stundaðar frá maí til ágúst.

Sjálfbærar og ábyrgar veiðar eru grunngildin í hugsuninni að baki strandveiðum. Þeim er jafnframt ætlað að opna tækifæri fyrir þau sem ekki hafa yfir aflamarki að ráða til að reyna fyrir sér í sjávarútvegi með því að opna á takmarkaðar veiðar sem ekki teljast til aflamarks.

Nýjustu fréttir

Foreldrar Elliða stolt á leið til Danmerkur
Dýpi ekki nægjanlegt í Landeyjahöfn — Herjólfur fer til Þorlákshafnar
Sigurmark ÍBV kom í blálokin gegn Fram
Andlát: Þórunn Pálsdóttir
Mílan Jezdimirovic skrifar undir samning við ÍBV
Aukum loðnuveiðar
Eyjagöng gera samninga um jarðfræðirannsóknir
Kristmundur Axel meðal listamanna á Hljómey
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.