Sumarstörfin hafin hjá bænum
blomagengi.jpg
Dittað að. Eyjar.net/TMS

Nú er unnið hörðum höndum að því að fegra bæinn okkar og halda honum snyrtilegum.

Í frétt á vef bæjaryfirvalda segir að alls séu yfir 40 krakkar í vinnu við umhverfisstörf hjá Vestmannaeyjabæ sem sjá um að slá grasflatir, planta blómum og mála sem og sinna öðrum verkefnum til þess að gera bæinn okkar snyrtilegan.

Vinnuskólinn hefst svo 10. júní og bætist þá heldur betur við starfskraftinn en um 90 börn á aldrinum 13 til 16 ára koma til með að vera í Vinnuskólanum.

Markmið vinnuskólans er að undirbúa unglinga í vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað. Vinnuskólinn er þó ekki einungis vinna heldur er einhver tilbreyting innifalin í skólanum, eins og í öðrum skólum.

Þar sem Vinnuskólinn hefur ekki neina sérstaka aðstöðu til umráða er ekki óeðlilegt að þau sjáist sitja og hvíla sig öðru hvoru.

Eiríkur Ómar Sæland stýrir allri sumarvinnu á vegum Vestmannaeyjabæjar í sumar en hann hefur mikla og góða reynslu af garðyrkjustörfum, segir jafnframt í fréttinni. Ef þið viljið koma einhverjum ábendingum áleiðis er hægt að senda á sumarstorf@vestmannaeyjar.is

Nýjustu fréttir

Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.