Sundlaugar opna og íþróttir heimilar
8. desember, 2020

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem taka gildi 10. desember næstkomandi. Varfærnar tilslakanir verða gerðar á reglugerð um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar og gilda breytingarnar til 12. janúar. Reglugerð um takmarkanir á skólahaldi vegna farsóttar verður að mestu óbreytt til áramóta en gert er ráð fyrir að kynna fljótlega nýjar reglur um skólastarf sem eiga að taka gildi 1. janúar 2021.

Viðkvæm staða
Breytingarnar eru að mestu í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis í meðfylgjandi minnisblöðum. Eins og þar kemur fram hafa verið sveiflur í þróun COVID-19 faraldursins frá því að reglur um gildandi sóttvarnatakmarkanir tóku gildi. Töluverð fjölgun daglega greindra smita varð í lok nóvember en síðustu daga hefur tilfellum fækkað aftur og þeir sem hafa greinst hafa flestir verið í sóttkví. „Því er ljóst að sæmileg tök hafa náðst á faraldrinum á þessari stundu en jafnframt má segja að staðan á þessum tímapunkti er viðkvæm þar sem að brugðið getur til beggja vona“ segir í minnisblaði sóttvarnalæknis.

Helstu breytingar á samkomutakmörkunum

  • Fjöldatakmörkun: miðast áfram við 10 manns en með ákveðnum undantekningum
  • Börn: Ákvæði um fjöldatakmörkun, nálægðartakmörkun og grímuskyldu taka ekki til barna sem fædd eru 2005 og síðar.
  • Verslanir: Allar verslanir mega taka á móti 5 manns á hverja 10 m² en að hámarki 100 manns.
  • Veitingastaðir: Heimilt verður að taka við 15 viðskiptavinum í rými. Heimilt verður að hafa opið til kl. 22.00 en ekki má taka á móti nýjum viðskiptavinum eftir kl. 21.00.
  • Sund og baðstaðir: Heimilt verður að hafa opið fyrir allt að 50% af hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi.
  • Íþróttir ÍSÍ: Íþróttaæfingar einstaklinga sem fæddir eru 2004 og fyrr eru heimilar með og án snertingar í íþróttum innan ÍSÍ í efstu deild. Æfingar afreksfólks í einstaklingsbundnum íþróttum eru heimilar. Æfingar sem krefjast snertingar innan bardagaíþrótta eru þó ekki heimilar.
  • Íþróttir almennings: Öllum er heimilt að stunda skipulagðar æfingar utandyra sem krefjast ekki snertingar.
  • Sviðslistir, bíósýningar og aðrir menningarviðburðir verða heimilir með allt að 30 manns á sviði, þ.e. æfingar og sýningar. Heimilt verður að taka á móti allt að 50 sitjandi gestum og þeim skylt að nota grímu og allt að 100 börnum fæddum 2005 og síðar. Hvorki hlé né áfengissala heimil. Sæti skulu númeruð og skráð á nafn.
  • Jarðarfarir: Hámarksfjöldi í jarðarförum verður 50 manns.
  • Gildistími: Framantaldar breytingar gilda frá 10. desember næstkomandi til 12. janúar 2021.

Breytingar á takmörkunum skólastarfs

  • Ákvæði um blöndun og hámarksfjölda leikskólabarna felld brott. Með þessu móti geta leikskólar aðlagað starfsemi sína betur yfir hátíðirnar þar sem barnahópar eru gjarna sameinaðir milli deilda eða jafnvel leikskóla.
  • Lestrarrými í framhaldsskólum og háskólum opnað fyrir allt að 30 nemendur.
  • Reglur um skólastarf sem taka gildi frá og með 1. janúar 2021 verða kynntar fljótlega.
  • Gildistími: Framantaldar breytingar gilda frá 10. desember til 31. desember.

Endurskoðunarákvæði eru í reglugerðum um sóttvarnaráðstafanir sem kveða á um að stjórnvöld skuli endurmeta þörf á takmörkunum eftir því sem efni standa til, hvort heldur til aukinna tilslakana eða hertra aðgerða eftir atvikum.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst