Í kvöld leiða ÍBV og Haukar saman hesta sína í fjórða leiknum um Íslandsmeistaratitilinn. ÍBV hefur komið mest allra liða á óvart og er árangurinn í Íslandsmótinu sá besti í sögunni.
Við báðum nokkra gamla refi um að spá fyrir um úrslit leiksins.
Svavar Vignisson
�?g var í liðinu sem keppti um Íslandsmeistar tilitilnn 2005 og því miður fór það ekki vel. �?g fæ enn óbragð í munninn við að hugsa um þá viðureign. �?g hef horft á þá leiki hundrað sinnum bæði á video og í huganum og velt því fyrir mér hvort við hefðum ekki geta gert eitthvað betur. �?g er sannfærður um að við vinnum á morgun. Vörnin þarf að halda og Kolli verður með yfir 45% markvörslu.
Skot á tölur:
Við verðum mjög agaðir í sókn og vinnum 27-25. Áfram ÍBV!
Sigmar �?röstur �?skarsson
�?etta verður baráttuleikur þar sem miklu meira er undir hjá okkur. Við þurfum að berjast eins og ljón og reyna að koma vel stemmndir til leiks eins og Haukarnir voru í seinasta leik á heimavelli. Fyrir okkur er þetta eins og bikarleikur, ég hef fulla trú á að þeir komi til baka eftir seinasta leik og vinni.
Skot á tölur:
26-24.
�?orbergur Aðalsteinsson
�?g hef trú á að ÍBV vinni leikinn og það sem gerði gæfumuninnn í seinasta leik var markvarslan. �?g held að það komi ekkert upp aftur og vonandi leysa þeir betur þennan framliggjandi varnarmann Hauka. �?etta er bara þolinmæði �?? varnarvinna og skynsemi í sókn, þetta býr í blóðinu.
Skot á tölur:
27-24.