Sverrir Bergmann fram í Suður­kjör­dæmi
Sverrir_bergmann_OPF_20240803_222242_cr
Sverrir Bergmann baksviðs á Brekkusviðinu í Herjólfsdal. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Sverr­ir Berg­mann, tón­list­armaður og bæj­ar­full­trúi í Reykja­nes­bæ, hyggst gefa kost á sér í þriðja sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í Suður­kjör­dæmi fyr­ir kom­andi Alþing­is­kosn­ing­ar.

Frá þessu er greint á fréttavefnum mbl.is þar sem haft er eftir Sverri að hann tel­ji mik­il­vægt að fá fleira sveit­ar­stjórn­ar­fólk yfir í lands­mál­in. „Fá betri teng­ingu þar á milli,“ seg­ir Sverr­ir, en hann brenn­ur helst fyr­ir mennta- og menn­ing­ar­mál­um.

Sverrir er ekki ókunnur Vestmannaeyjum og þá helst Þjóðhátíð. Hann hefur margsinnis komið fram á hátíðinni og tekið þátt í að syngja nokkur þjóðhátíðarlög í gegnum tíðina. Í gær var greint frá því að Víðir Reynisson muni leiða lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.