„Fasteignamat ríkisins, FMR, ákvarðar fasteignamat allra eigna í landinu en matinu er ætlað að endurspegla markaðsvirði eigna. FMR tekur mið af markaðsvirði eigna og byggir mat sitt á söluverði fasteigna nokkur ár aftur í tímann og er þar byggt á þinglýstum kaupsamningum,“ sagði Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs, en fasteignamat hækkaði mest í Vestmannaeyjum á öllu landinu.