„Tæknin felur í sér margvísleg tækifæri“
willum-thor-stjr-cr
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt frumvarpinu verður bætt inn í lögin ákvæðum um fjarheilbrigðisþjónustu, skýringum á þeirri þjónustu sem flokkast þar undir ásamt ákvæði um upplýsingaöryggi.

„Miklar framfarir hafa átt sér stað í fjar­heil­brigðis­þjónustu síðustu ár. Tæknin felur í sér margvísleg tækifæri og er mikilvægur liður í því að mæta áskorunum heilbrigðiskerfisins. Gildandi löggjöf þarf að taka mið af þeirri þróun og styðja við hana svo fjarheilbrigðisþjónusta nýtist til fulls við samskipti, greiningu, meðferð og veitingu fjölbreyttar þjónustu við sjúklinga“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

Með fjarheilbrigðisþjónustu er hægt að nýta betur mannauð, efla samvinnu milli stofnana og landsvæða, auka hagkvæmni, gera þjónustu aðgengilega óháð búsetu og stuðla að nýsköpun. Með aukinni fjarheilbrigðisþjónustu má einnig auka framboð af fjölbreyttri þjónustu til að koma til móts við mismunandi þarfir sjúklinga og nýta fjölbreytta menntun og reynslu heilbrigðisstarfsmanna, segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Skilgreining fjarheilbrigðisþjónustu

Með frumvarpinu er lagt til að fjarheilbrigðisþjónusta verði skilgreind í lögum um heilbrigðisþjónustu „sem nýting stafrænnar samskipta- og upplýsingatækni til að veita heilbrigðisþjónustu þar sem aðilar eru ekki á sama stað á sama tíma.“ Þar undir fellur:

  • Fjarsamráð: Samráð heilbrigðisstarfsfólks og miðlun heilbrigðisupplýsinga í gegnum viðeigandi og öruggan tæknibúnað.
  • Fjarvöktun: Notkun á stafrænum lausnum og tæknibúnaði í fjarvöktun á heilbrigðisástandi.
  • Myndsamtal: Rauntímasamskipti heilbrigðisstarfsmanns og sjúklings með öruggum tæknibúnaði.
  • Netspjall og hjálparsími: Samskipti heilbrigðisstarfsfólks við sjúklinga í hjálparsíma eða á netspjalli sem kalla á leit upplýsinga eða skráningu upplýsinga í sjúkraskrá sjúklings.
  • Velferðartækni: Notkun á stafrænum tæknilausnum heilbrigðisþjónustu sem styðja búsetu einstaklinga í heimahúsi.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.