Tælenskir tvíburar og flökunarmeistarar í Hólmaskeri fagna aldarafmæli
1. apríl, 2022

Rjómatertur á borðum í morgunkaffinu, svínasteik og blómvendir í hádeginu og veislufagnaður á veitingastaðnum Bangkok í Kópavogi í kvöld.

Þetta var ekkert venjulegur vinnudagur í Hólmaskeri, fiskvinnslufyrirtækinu í Hafnarfirði sem Vinnslustöðin á meirihluta í. Starfsmennirnir og tvíburabræðurnir Eiríkur og Tho fagna nefnilega fimmtugsafmæli í dag.

Þegar þeir slá saman tímamótunum verður úr heil öld. Menn  gera sér nú aldeilis dagamun af minna tilefni.

Eiginkonur beggja vinna líka í Hólmaskeri, Jampa og Mayuri, og í dag var þarna líka sonur annarra hjónanna (Eiríks og Jampa), Eiríkur yngri, við störf og sömuleiðis bróðursonur tvíburabræðranna. Þeir gerast varla fjölskylduvænni vinnustaðirnir á Íslandi, í bókstaflegum skilningi!

Tvíburinn Eiríkur eldri kom hingað til lands frá Tælandi 1990 og byrjaði til sjós á trillu frá Vopnafirði. Hann finnur enn fyrir grásleppufiðringi þegar vor er í lofti líkt og gerist um þessar mundir. Loksins, loksins vorar.  Systir hans bjó á Bakkafirði eystra. Þess vegna lá leiðin til Austfjarða.

Síðan flutti hann suður og fór að vinna í Frostfiski, hjá bræðrunum Steingrími og Þorgrími, sonum Leifs Halldórssonar aflaskipstjóra og útgerðarmanns í Ólafsvík.

Hinn tvíburinn, Tho, kom til Íslands 1998 og fór að vinna í Frostfiski á Granda í Reykjavík og um hríð hjá sömu atvinnurekendum í Ólafsvík.

Báðir fluttu tvíburabræðurnir sig síðan til Þorlákshafnar þar sem þeir bjuggu og störfuðu um árabil, alltaf við að flaka ýsu fyrir Bandaríkjamarkað. Þeir eru fyrir löngu skráðir flökunarmeistarar á spjöld atvinnusögunnar, harðduglegir og samviskusamir. Þeir voru strax orðnir óþreyjufullir að komast inn í sal að flaka ýsu þegar þeim fannst hádegispásan lengjast óþægilega mikið vegna fagnaðarláta og afmælistilstands í dag!

Fagnaðarfundir urðu þegar bræðurnir Steingrímur og Þorgrímur birtust með blóm í tilefni dagsins og heilsuðu upp á afmælisbörnin og fjölskyldur þeirra. Sannkölluð hátíð í bæ.

 

Tvíburarnir búa núna með fjölskyldum sínum á höfuðborgarsvæðinu en í Þorlákshöfn á dóttir Tho, Anuthida Korshaia, enn heima. Sú mætti í Hafnarfjörð í dag til að fagna með sínu fólki.

Tvíburabræðurnir eru í hópi alls 11 systkina. Þar af eru fimm búsett á Íslandi, það er að segja þeir tveir og þrjár systur þeirra. Frændgarðurinn allur er orðinn svo stór að hann gæti í sameiningu myndað stöndugt þorp, hvort heldur væri á Íslandi eða í Tælandi!

Hádegisstundin í Hólmaskeri var hlýleg og notaleg. Vinnustaðurinn býður af sér góðan þokka og andrúmsloftið eftir því . Tælendingarnir, sem eru íslenskir ríkisborgar og gegnheilir Íslendingar, eru gott dæmi um fólk sem flytur hingað og gerir gott þjóðfélag enn betra með því að auðga á sinn hátt menninguna, atvinnulífið og samfélagið yfirleitt.

Svo reyndust þessir landar vorir af tælenskum uppruna á einu máli um að íslenska sumarið væri mun geðslegra en það tælenska! Þar ytra væri bæði óþægilega heitt og rakt að sumarlagi en skaplegt hér.

Hvað eru svo innfæddir Íslendingar að kvarta yfir veðurfarinu hjá okkur?

  • Vinnslustöðin tilkynnti seint á árinu 2021 að hún hefði keypt 75% hlutafjár í Hólmaskeri af hjónunum Alberti Erlusyni og Jóhönnu Steinunni Snorradóttur. Þau eiga áfram fjórðungshlut í Hólmaskeri og Albert er áfram framkvæmdastjóri félagsins.
  • Í Hólmaskeri er flökuð ýsa og send á markað á austurströnd Bandaríkjanna.
  • Með þessu skrefi stuðlar Vinnslustöðin að því að efla fiskvinnslu á Íslandi og auka verðmæti þess sem sjávarauðlindin gefur af sér.

Albert framkvæmdastjóri talaði við starfsmenn í upphafi hádegishlésins og óskaði tviburunum til hamingju með daginn. Tho er rauðklæddur með gleraugu á myndunum en Eiríkur grænklæddur og gleraugnalaus!

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst