Sá fáheyrði atburður átti sér stað hjá Íslenskum getraunum um síðustu helgi að sami tippari var með 13 rétta bæði á Enska getraunaseðlinum sem spilaður er á laugardögum og á Evrópuseðlinum sem spilaður er á sunnudögum. Þetta segir í tilkynningu frá Íslenskri Getspá og það tekið fram að þetta sé ekki aprílgabb.
Tipparinn, sem er tæplega níræður Vestmannaeyingur, fékk rúmar 800 þúsund krónur í sinn hlut í vinninga. Hann notaði kerfismiða í báðum tilfellum og kostaði Enski seðillinn 8.424 krónur og Evrópuseðillinn 4.212 krónur. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi tippari fær 13 rétta en hann hefur reynst ansi glúrinn í gegnum tíðina. Tipparinn styður við bakið á Knattspyrnufélaginu Smástund, (KFS) í Vestmannaeyjum.