Þjóðhátíð okkar Eyjamanna á sér lengri og sterkari hefð en aðrar skemmtanir og hátíðir á Íslandi. Uppskriftin er ekki flókin en þrátt fyrir ríkan vilja hefur engu öðru bæjarfélagi eða skemmtanahöldurum tekist að leika þennan leik eftir. Þjóðhátíðin er því einstök.