�?rasi mættur hjá The Brothers Brewery
Í dag setur brugghúsið The Brothers Brewery í dreifingu kosningabjórinn �?rasa. �?rasi kom fyrst í sölu fyrir síðustu Alþingiskosningarnar 2016 og gerðu strákarnir í The Brothers Brewery ekki ráð fyrir því að setja hann aftur í framleiðslu fyrr en árið 2020. En skjótt skipast veður í lofti og um leið og tilkynnt var að kosið yrði á ný til Alþingis 28. október næstkomandi var ákveðið að skella á ný í �?rasa.
�??�?að kom ekkert annað til greina en að skella í 2018 útgáfu af �?rasa. Við fengum skemmtileg viðbrögð við �?rasa á síðasta ári og hefur vörkumerkið hans vakið mikla athygli enda er það frekar í grófari kantinum. Gunnar Júlíusson hannaði þetta því við vildum ná að fanga soldið það hvernig virkir í athugasemdum horfðu á stjórnmálamenn. Í ljósi aðstæðna að kosið hafi verið innan árs frá síðustu kosningum þá höfðum við �?rasa núna örlítrið bitrari bjór�?? sagði Kjartan Vídó markaðsstjóri The Brothers Brewery.
�?rasi verður til sölu í takmörkuðu upplagi á eftirfarandi sölustöðum frá og með deginum í dag. Micro bar Reykjavík, Bjórgarðurinn Reykjavík, Skúli Craft bar Reykjavík, Hverfisbarnum Reykjavík og á �?lstofu The Brothers Brewery í Vestmannaeyjum.
Veitingageirinn.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Páskafundur í safnaðarheimili Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.