KFS tekur á móti Létti í kvöld á Týsvellinum klukkan 17:30. Um er að ræða síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum 4. deildar en KFS hafði betur í fyrri leik liðanna á útivelli 0:2. Eyjamenn eru því komnir í góða stöðu en Hjalti Kristjánsson, þjálfari KFS hefur þó varann á sér. �??Við klúðruðum svipaðri stöðu fyrir fimm árum síðan. �?á unnum við Hvíta riddarann 1:3 á útivelli en töpuðum svo heimaleiknum 2:5 og féllum því úr leik.�??
Eru allir leikmenn heilir?
�??Já allir leikmenn sem hafa verið að spila með okkur í sumar eru heilir og ég hef sjaldan haft úr eins stórum leikmannahópi yfir að ráða. En við þurfum engu að síður á góðum stuðningi að halda í kvöld og ég hvet alla til að koma á Týsvöllinn klukkan 17:30 og styðja við bakið á KFS.�??