Tóku forskot á sæluna
Breki Vestm
Breki VE á leið úr höfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Jólahlaðborðin eru hafin vítt og breitt um landið. En ekki einungis til lands heldur líka til sjós. Guðmundur Helgason, háseti og afleysingakokkur á Breka VE kom skipsfélögum sínum í jólagírinn í síðasta túr, þegar hann töfraði fram glæsilegt jólahlaðborð.

Litlu jólin um borð. Er hefð fyrir þessu hjá ykkur á Breka? Nei þetta er í fyrsta skipti sem ég býð upp á þetta, segir Guðmundur í samtali við Vinnslustöðvarvefinn.

Matthías fékk möndluna

Spurður hvað hann hafi boðið upp á, segir hann að það hafi verið allt það helsta sem prýðir gott jólahlaðborð. Má þar nefna lax, pate, síldarsalat, purusteik, hamborgarhrygg, hangikjöt, lambafille og í eftirrétti voru m.a. ostakaka, ris ala mandle og tiramisu.

Í ris ala mandle var svo ein heil mandla sem var ávísun á enn frekara góðgæti. Fékk sá heppni – Matthías Ragnarsson sérstaka möndlugjöf.

Matti Fb
Matthías Ragnarsson með möndlugjöfina góðu.

Fullfermi eins og alltaf

Guðmundur sem er búinn að vera í tvö og  hálft ár í áhöfn Breka sem háseti og er eins og áður segir afleysingarkokkur og leysir Ingólf Ingvarsson af, svarar að bragði – aðspurður um hvort ekki sé kominn jólafílingur í mannskapinn: Jú, allir að detta í jólaskapið.

En hvernig gekk túrinn? Mjög vel. Sex daga túr á vestfjarðamiðum. Fullt skip (eins og alltaf) af blönduðum afla, segir Guðmundur léttur í bragði.

Fleiri myndir frá hlaðborðinu má sjá hér.

GH Fb Cr
Guðmundur Helgason

Nýjustu fréttir

Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í ferbrúar-blíðunni
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.