Þjóðhátíð meðal þeirra best heppnuðu á síðari árum
Brekkan var þétt setin í gærkvöldi. Ljósmyndir/Jonfromiceland.

Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum lauk undir morgun eftir afar vel heppnaða hátíð. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnendum gæslumála bendir allt til þess að hún hafi verið meðal þeirra best heppnuðu á síðari árum.

Hátíðin fór afar vel fram og einkenndist af virðingu, tillitssemi og vinsemd meðal gesta, að því er fram kemur í tilkynningu frá þjóðhátíðarnefnd.

Um miðjan júlí veltu fjölmiðlar því fyrir sér hvort miðasala gengi hægar en undanfarin ár. Sú mynd breyttist hratt þegar nær dró verslunarmannahelginni og hagstæðar veðurspár fóru að birtast.

Þúsundir gesta bættust við á laugardag og sunnudag, flestir með Herjólfi en einnig með flugi til Vestmannaeyja. Þegar litið var yfir Herjólfsdal á kvöldvökunni í gær var ljóst að hátíðin var afar vel sótt.

Frábærar viðtökur í fyrsta brekkusöngnum

Lokakvöldið fór fram í blíðskaparveðri. Hljómsveitin Gosarnir, skipuð Vestmannaeyingum, sá um tónlistina á kvöldvökunni ásamt Pálma Gunnarssyni, Klöru Elías, Jóni Jónssyni, Birgittu Haukdal og Matta Matt. Þegar leið á kvöldið bættist Friðrik Dór einnig í hópinn.

Brekkusöngurinn var í fyrsta sinn undir stjórn Ágústs Brynjarssonar, sem tók við hlutverki brekkusöngsstjóra fyrr á árinu. Frumraun hans fékk frábærar viðtökur og tóku gestir í Herjólfsdal vel undir sönginn.

Að brekkusöngnum loknum voru hin hefðbundnu blys tendruð í hlíðum dalsins, eitt fyrir hverja Þjóðhátíð sem haldin hefur verið í Vestmannaeyjum.

Stuðlabandið tók síðan við á stóra sviðinu og dansleikurinn hélt áfram fram undir morgun þegar Þjóðhátíð 2026 lauk formlega.

Samkvæmt fyrstu upplýsingum gekk framkvæmd hátíðarinnar og öryggisgæsla vel fyrir sig og engin teljandi vandræði urðu á hátíðarsvæðinu. Gott veður, fjölmenni og rólegt yfirbragð einkenndu Þjóðhátíð 2026.

Nýjustu fréttir

Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Bleikur blær og ABBA-tónar hjá Krabbavörn
Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Átta marka tap hjá ÍBV gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.