Ein með öllu og Innipúkinn fengu sviðsljósið
Þjóðhátíð kemst í fréttir þegar eitthvað fór úrskeiðis - Myndir frá hátíðinni í Herjólfsdal í gærkvöldi
Ævintýraveröld í Herjólfsdal. Myndir Óskar Pétur.

 Yfirferð á sjónvarpsfréttum RÚV síðustu daga vekur upp spurningar um forgangsröðun ríkismiðilsins um verslunarmannahelgina. Á meðan Ein með öllu á Akureyri og Innipúkinn í Reykjavík fengu ítrekaða og jákvæða umfjöllun um tónleika, mannlíf og hátíðarstemningu, var Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum nær ósýnileg – þar til eitthvað neikvætt gerist.

Í vikunni sýndi RÚV stutta frétt um undirbúning Þjóðhátíðar. En þegar hátíðin var formlega sett í Herjólfsdal á föstudag, í blíðskaparveðri og að viðstöddu fjölmenni þar sem Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands flutti hugvekju, var engin sjónvarpsumfjöllun. Engar myndir af hvítu tjöldunum, setningarathöfninni, þúsundum gesta eða þeirri einstöku stemningu sem hefur einkennt Þjóðhátíð í meira en 150 ár.

Á laugardag komst Þjóðhátíð loks í fréttir. Tilefnið voru sex minniháttar fíkniefnamál. Ekki var hins vegar minnst á að lögreglan hefur um árabil verið með öflugt eftirlit í Eyjum einmitt til að koma í veg fyrir alvarleg brot og tryggja öryggi gesta. Á sama tíma fengu Ein með öllu og Innipúkinn ríflega umfjöllun um tónleika, fjölskylduskemmtun og hátíðarstemningu.

Auðvitað á RÚV að segja frá lögreglumálum. En á stærsti menningarviðburður verslunarmannahelgarinnar ekki líka skilið að komast í fréttir þegar allt gengur vel? Ég nennti ekki að telja mínúturnar. Heildarmyndin segir þó sitt, Ein með öllu og Innipúkinn fengu sviðsljósið. Þjóðhátíð fékk frétt þegar lögreglan hafði afskipti af fáeinum gestum.

Fréttir frá Akureyri í morgun minna jafnframt á að í tugþúsunda hópi geta örfáir einstaklingar valdið vandræðum. Það á jafnt við í Herjólfsdal, á Akureyri og í Reykjavík. Stórar hátíðir á ekki að dæma eftir fáeinum brotum heldur þeim þúsundum sem koma saman til að njóta í friði og  og sátt  og ekki síst í gleði. Sú saga á líka skilið að komast í fréttir.

Að lokum óska ég gestum hátíða um allt land góðrar skemmtunar í kvöld og góðrar heimkomu eins og sagt var á sjónum í denn.

Með greininni fylgja myndir sem Óskar Pétur tók af Þjóðhátíð í Herjólfsdal í gærkvöldi.

Ómar Garðarsson, fyrrum ritstjóri Eyjafrétta.

 

 

Nýjustu fréttir

Sex gistu fangageymslur eftir annasama nótt
Ein með öllu og Innipúkinn fengu sviðsljósið
Dagskrá sunnudags á Þjóðhátíð
Ágúst Þór brekkusöngvari Þjóðhátíðarinnar
Alltaf stuð í Eyjum
ÍBV tapaði Þjóðhátíðarleiknum gegn Fram
Þjóðhátíð fær fljúgandi start
Sex fíkniefnamál og einn ölvunarakstur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.