Tveimur tilboðum í Tonny hafnað
ÍBV hefur hafnað tveimur tilboðum norska úrvalsdeildarliðsins Haugesund í miðjumanninn sterka Tonny Mawejje. Fyrsta tilboð norska liðsins var talsvert frá því sem Eyjamenn sættu sig við og sendu þeir því út gagntilboð og fengu nýtt tilboð til baka sem var enn óásættanlegt að mati Eyjamanna. Viðræður um leikmanninn hafa því siglt í strand en vitað er af áhuga fleiri liða á �?gandamanninum sterka.
Tonny er samningsbundinn ÍBV út næsta tímabil en hann hefur verið í herbúðum ÍBV síðan sumarið 2009. Alls hefur hann leikið 115 leiki fyrir ÍBV og skorað í þeim 11 mörk en hann er lykilmaður í liði Eyjamanna og átti mjög gott tímabil síðasta sumar.
Haugesund endaði í þriðja sæti í norsku Tippeligaen og komst í undanúrslit bikarsins.

Nýjustu fréttir

„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“
Eyjalistinn boðar til félagsfundar
Góð aðsókn á fundi Eyþórs
Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum
Heimaey í dag
Besta rekstrarafkoma í 15 ár
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.