Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Tveir menn af erlendu bergi brotnir hafa verið dæmdir í Héraðsdómi Suðurlands fyrir þjófnað og peningaþvætti eftir að hafa ítrekað stolið endurvinnanlegum drykkjarumbúðum úr söfnunargámi ÍBV-íþróttafélags og innleyst skilagjaldið sjálfir. Dómur í málinu féll í gær og játuðu mennirnir báðir brot sín fyrir dómi.

Samkvæmt dómi stal annar mannanna ítrekað endurvinnanlegum drykkjarumbúðum úr gámi félagsins við Hamarsveg á tímabilinu frá ágúst 2023 fram til 30. nóvember sama ár. Hann skilaði síðan umbúðunum til Endurvinnslunnar og fékk skilagjaldið lagt inn á bankareikning sinn. Samtals nam ávinningur hans af brotunum rúmlega einni milljón króna.

Hinn maðurinn stal einnig drykkjarumbúðum úr sama gámi á tímabilinu frá ágúst til loka september 2023 og fékk samtals rúmlega 45 þúsund krónur greiddar í skilagjald fyrir umbúðirnar. Í málinu var einnig gerð skaðabótakrafa fyrir hönd ÍBV að fjárhæð 1,5 milljónir króna. Fyrir dómi kom fram að mennirnir hefðu greitt kröfuna að fullu og var hún því afturkölluð áður en dómur féll.

Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að mennirnir höfðu játað brotin og bætt tjónið. Annar mannanna var dæmdur í 90 daga fangelsi og hinn í 30 daga fangelsi. Fullnustu beggja refsinganna var frestað og falla þær niður að tveimur árum liðnum haldi þeir almennt skilorð.

Nýjustu fréttir

Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.