Tveir í einangrun og fjórir í sóttkví
Í dag, þriðjudaginn 31. ágúst, eru 2 einstaklingar í einangrun í Vestmannaeyjum vegna Covid-19 og 4 í sóttkví.
Höldum áfram að passa okkur og gætum vel að einstaklingsbundnum smitvörnum og almennum sóttvörnum, virðum fjarlægðartakmarkanir og notum handspritt og andlitsgrímu.
Þeir sem finna fyrir flensueinkennum eru hvattir til að fara í sýnatöku og halda sig til hlés þar til niðurstaða liggur fyrir. Á HSU í Vestmannaeyjum, Sólhlíð 10, eru tekin sýni alla virka daga kl. 13:00-13:15. Best er að skrá sig í sýnatöku gegnum vefsíðuna Heilsuvera.is en einnig má hafa samband við heilsugæsluna í síma 432-2500. Mæting í sýnatöku er við inngang á 1. hæð, aðkoma frá Helgafellsbraut. Raðir geta myndast utandyra á álagspunktum í sýnatöku og er fólk hvatt til að klæða sig eftir veðri. Allir sem mæta í sýnatöku eiga að nota andlitsgrímu.

Nýjustu fréttir

Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal
Stytting Hörgaeyrargarðs færist nær
Jafntefli hjá Heimi og Írum gegn Ísrael
Fimm ferðir til Landeyjahafnar á mánudag – dýpkun að hefjast
Erlingur stýrði Minden til sigurs í sínum fyrsta leik
Lærdómur liðinnar viku
Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.