Tvö bónorð í brekkunni
�?jóðhátíð er fjölskylduhátíð og fyrstu skref að nýrri fjölskyldu myndast oft í Herjólfsdal þar sem rómantíkin svífur yfir. Í ár voru tvö bónorð í brekkunni. Annars vegar bað tónlistamaðurinn Bergsveinn Arilíusson unnustu sinnar á laugardagskvöldið en sú heppnað heitir Rut Tryggvadóttir. Beggi, eins og hann er alltaf kallaður, fékk vini sína í Skítamóral til að aðstoða sig við bónorðið og til þess að það færi nú örugglega ekki framhjá neinum, þá fékk hann starfsmenn þjóðhátíðar til að varpa upp á risaskjá sjálfu bónorðinu, sem var svohljóðandi:

Rut, viltu giftast mér.
Respect.
Beggi í Sóldögg.
Kvöldið eftir var það svo Jón �?ormar sem bað unnustu sinnar, Súsönnu Englund. Jón fékk Halldór Fjallabróður í lið með sér en fyrir síðasta lag Fjallabræðra og Lúðrasveitar Vestmannaeyja sagði Halldór söguna af Jóni �?ormari, sem væri í brekkunni með Súsönnu og væri nú á hnjánum. �?á var Jón á hnjánum fyrir aftan Súsönnu og viðbrögð hennar eru kostuleg, eins og sjá má á myndabandinu hér að neðan. Auðvitað fengu bæði Jón og Beggi já og spurning hvort það verði brúðkaup á næstu þjóðhátíð. Annað eins hefur nú gerst.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.