Í kvöld verður sannkallaður stórleikur í 1. deild karla í knattspyrnu þegar topplið ÍBV tekur á móti nágrönnum sínum frá Selfossi. Selfyssingar hafa komið mörgum á óvart með jöfnum og góðum leik og eru eina taplausa liðið í efstu deild. ÍBV hefur hins vegar ekki gert mörg mistök í upphafi móts, hafa unnið níu af fyrstu tíu leikjum sínum. Það verður því væntanlega háspenna lífshætta klukkan 20.00 á Hásteinsvellinum í Eyjum í kvöld.