Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi
Prófkjörið verður 13. mars.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins verður bæði á sjúkrahúsinu og á Hraunbúðum. Þeir sem dveljast á þessum stöðum og geta ekki mætt á kjörstað geta því greitt atkvæði þar.

Atkvæðagreiðsla á báðum stöðum fer fram á morgun, fimmtudag 12. mars. Á sjúkrahúsinu verður kosið kl. 12:30 en á Hraunbúðum kl. 14:15.

Fulltrúar kjörstjórnar munu mæta á áðurnefnda staði á þessum tíma, með kjörgögn, og gefa þeim sem þar eru tækifæri á að greiða atkvæði, segir í tilkynningu frá kjörstjórn.

Nýjustu fréttir

Rekstur Vestmannaeyjabæjar jákvæður um 781 milljón 
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Bríet Björk, Caritas Rós og Kolbrá bestar
Ykkar er valið
Niðurstöður prófa – Vestmannaeyjar í einstakri stöðu
Að alast upp í Vestmannaeyjum 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.