„Ég varð bara að nýta tækifærið loksins þegar ég fékk það en ég fékk ekki eins mörg tækifæri á undirbúningstímabilinu og ég hefði viljað,“ sagði Haukur Jónsson, markvörður ÍBV, sem svo sannarlega kom, sá og sigraði með liði sínu gegn ÍR í fyrstu umferð Olís-deildarinnar í handknattleik.