Niðurstaða útboðs vegna uppbyggingar og reksturs heilsuræktar við Íþróttamiðstöð
Fréttatilkynning frá Vestmannaeyjabæ
ithrotta-6.jpg
Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Þann 18. febrúar 2026 var sérleyfi vegna uppbyggingar og reksturs heilsuræktar í Vestmannaeyjum auglýst formlega, að undangengnum rúmlega sex mánaða undirbúningi. Áhugasömum aðilum var veittur frestur til að skila tilboðum til 23. mars 2026. Um er að ræða umfangsmikið verkefni sem krefst ítarlegrar lagalegrar greiningar, fjárhagslegra útreikninga og vandaðrar gagnaöflunar.

Samkvæmt skilmálum valferlisins höfðu áhugasamir aðilar tækifæri til að bera fram fyrirspurnir og óska eftir breytingum á einstökum þáttum þess. Á tilboðstíma bárust tvær fyrirspurnir þar sem óskað var bæði skýringa og breytinga á skilmálum valferlisins, og var fallist á breytingarbeiðnir.

Að loknum tilboðstíma bárust tvö tilboð, annars vegar frá Laugum ehf. og hins vegar frá Sporthöllinni ehf. Að lokinni yfirferð og mati á grundvelli valforsendna útboðsgagna var það niðurstaða að tilboð Lauga ehf. væri hagkvæmast.

Vestmannaeyjabær gat ekki tjáð sig opinberlega um efni skilmála á meðan valferlið stóð yfir, enda ber samkvæmt meginreglum laga um opinber innkaup að tryggja jafnræði og gagnsæi við upplýsingagjöf. Nauðsynlegt er að allir áhugasamir aðilar, hvort sem þeir eru innlendir eða erlendir, hafi aðgang að sömu upplýsingum á sama tíma.

Kæra vegna skilmála valferlisins hefur verið lögð fram og er nú til meðferðar hjá kærunefnd útboðsmála. Vegna þessa mun Vestmannaeyjabær ekki tjá sig frekar um efni málsins á meðan það er til úrlausnar hjá nefndinni.

Vestmannaeyjabær mun fara ítarlega yfir málið og veita frekari upplýsingar þegar niðurstaða kærunefndar liggur fyrir, segir í fréttatilkynningu frá Vestmannaeyjabæ.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.