Veiddu eina stærstu sandhverfu sem veiðst hefur við Ísland
Skipverjar á Vestmannaey VE með sandhverfuna. Talið frá vinstri: Ellert Scheving háseti, Valtýr Auðbergsson matsveinn og Finnur Freyr Harðarson háseti. Ljósm. Birgir Þór Sverrisson

Vestmannaey VE kom til löndunar í Vestmannaeyjum í gærmorgun með fullfermi. Frá þessu er greint á heimasíðu Síldarvinsslunnar. Í afla skipsins var sandhverfa sem mun vera ein hin stærsta sem veiðst hefur hér við land. Heimasíðan ræddi við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra og spurði hann fyrst hvar fiskurinn hefði veiðst. „Við veiddum þennan fisk við Ingólfshöfða, en mér skilst að allar stærstu sandhverfur sem veiðst hafa við landið hafi einmitt veiðst þar. Sandhverfa er sjaldgæfur fiskur og stórar sandhverfur afar fágætar. Þessi fiskur fæst helst í fótreipi á grunnslóð. Við höfum stundum fengið 3-4 sandhverfur á ári en sum árin fæst engin og jafnvel sjáum við ekki þennan fisk í afla árum saman. Strax og við komum í land í Eyjum komu fulltrúar frá Hafró um borð til að mæla og vigta fiskinn og þá var það staðfest:

Sandhverfan reyndist vera 85 sentimetra löng, 69 sentimetra breið og vigtaði 13 kíló. Ljósm. Birgir Þór Sverrisson

Þetta er ein stærsta sandhverfa sem veiðst hefur við Ísland svo vitað sé. Hún reyndist vera 85 sentimetra löng, 69 sentimetrar á breidd og vigtaði 13 kíló. Mér skilst að einungis ein sandhverfa af svipaðri stærð hafi áður veiðst við landið,“ segir Birgir Þór.

Sumir matgæðingar halda því fram að sandhverfa sé besti fiskur í heimi. Um er að ræða feitan flatfisk sem selst víða háu verði.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.