Verða hitamet slegin á Stórhöfða á morgun?
Veður hefur verið hagtætt í sumar. Þeir voru margir sem nutu góða veðursins á nýliðinni goslokahátíð. Mynd Óskar Pétur.

Á morgun, mánudaginn 14. júlí er spáð mjög góðu veðri á öllu landinu, sól og hita og ekki útilokað að hitamet falli, m.a. á Stórhöfða. Þar spáir Veðurstofan 18 stiga hita, hægum vindi og sól seinni partinn.

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, setti saman veðurannál fyrir árið 2008. Þar rifjar hann upp það helsta sem gerðist í veðrinu á árinu. Nýtt hitamet var sett á Stórhöfða í Vestmannaeyjum 30. júlí, (21,6 stig) en þar hefur verið mælt samfellt frá 1921. Í töflu um hita á Stórhöfða komst hann í 21,2 gráður árið 1924.

Það verður því áhugavert að fylgjast með hitatölum á morgun. Verður metið jafnað eða bætt?

Upplýsingar af vef Veðurstofunnar.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.