Vinna allt að 100 tonn á dag
Ljósmynd/Vinnslustöðin

Þótt loðnuvertíðin sé að baki er engu að síður mikið að gera í fiskvinnslu Vinnslustöðvarinnar. Nú er vetrarvertíðin í fullum gangi og mikið af afla berst að landi. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Vinnslustöðvarinnar.

Þar segir jafnframt að kapp sé lagt á að framleiða sem mest af saltfiski á þessum tíma, þorski sem er flattur og saltaður í hágæðaafurðir fyrir Portúgalsmarkað. Afurðirnar fara svo í áframvinnslu, pökkun og dreifingu hjá Grupeixe, dótturfélagi Vinnslustöðvarinnar í Portúgal.

Benoný Þórisson, framleiðslustjóri, lætur vel af saltfiskvertíðinni það sem af er: „Þetta hefur bara gengið mjög vel hjá okkur. Við náðum að halda uppi saltfiskvinnslu samhliða frystingu loðnu og loðnuhrogna í febrúar og mars. Nú þegar loðnan er að baki getum við sett enn meiri kraft í saltfiskframleiðsluna. Þetta eru langir og öflugir dagar. Við erum oft að vinna 70 til 80 tonn af hráefni á dag og suma daga förum við yfir 100 tonn. Við erum með öflugt starfsfólk sem stendur sig vel og þannig er þetta hægt.“

Nýjustu fréttir

Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Ofsaveður setti svip sinn á haustrall Breka
Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.