Foreldrar hvattir til að fylgjast með í fyrramálið
Appelsínugul viðvörun er í gildi í fyrramálið.

Stjórnendur Grunnskóla Vestmannaeyja hafa sent foreldrum og forráðamönnum tilkynningu vegna aðstæðna í fyrramálið.

,,Viljum góðfúslega benda ykkur á að appelsínugul veðurviðvörun er í gildi í fyrramálið frá kl. 07:00.
Ef um appelsínugular viðvaranir er að ræða eru stofnanir alla jafna opnar og skólastarf óskert. Foreldrar/forráðamenn meta hvort börn þeirra mæti í skólann, ber þá að tilkynna forföll til ritara/umsjónarkennara strax að morgni. Bæjaryfirvöld ákveða, eftir samráð við lögreglu, hvort til lokana þarf að koma.

Við biðjum ykkur þess vegna að fylgjast vel með í fyrramálið, ef til lokana kemur verður sendur út póstur upp úr kl. 7:00
Annars biðjum við ykkur að fylgja amk yngstu nemendum inn í skólann í fyrramálið.”

Nýjustu fréttir

ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjakonur geta endurheimt þriðja sætið
Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Bergey með fínasta karfa
Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum
Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.