Vestmannaeyjabær kveður starfsfólk

Skapast hefur hefð fyrir því að kveðja starfsfólk sem látið hefur af störfum hjá Vestmannaeyjabæ vegna aldurs með sérstakri viðhöfn í árslok.

Á fimmtudag bauð Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, starfsfólki sem látið hefur af störfum á árinu til samverustundar í Eldheimum. Þar færði Íris þeim lítinn þakklætisvott fyrir framlag þeirra til Vestmannaeyjabæjar á starfsævinni og minntist hvers og eins með nokkrum orðum.

Alls sjö einstaklingar létu af störfum vegna aldurs á þessu ári. Þeir eru Aðalheiður Sveinsdóttir Waage, Allan F. Alison, Einar Steingrímsson, Ingunn Elín Hróbjartsdóttir, Linda Sigurlássdóttir, Ólafur Lárusson og Sveinn Rúnar Valgeirsson.

Óskar Pétur Friðriksson tók meðfylgjandi myndir

Nýjustu fréttir

Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Ofsaveður setti svip sinn á haustrall Breka
Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.