„Við erum meistarar!“
Íris Róbertsdóttir

Það er sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Það þarf líka heilt samfélag til að ná árangri. Við erum 4500 manna bæjarfélag með bæði kvenna- og karlaliðin okkar í efstu deild í handknattleik og knattspyrnu. Það er afrek út af fyrir sig en við erum líka að ná árangi.

Samtakamáttur og samstaða er lykill að góðum árangri, góðu umhverfi og jarðvegi til árangurs. Í dag eigum við Vestmannaeyingar þrjá af sex titlum í meistaraflokki í handknattleik. Strákarnir urðu Íslandsmeistarar í þriðja sinn frá 2014 og stelpurnar deildar- og bikarmeistarar og með silfur í Íslandsmótinu. Þetta er algerlega frábær árangur.

Stemming, gleðin og umgjörðin sem búið er að skapa í kringum liðin er frábær og áhuginn sem bæjarbúar sýna með þátttöku í leikum af áhorfendapöllunum er ómetanlegur fyrir okkar íþróttafólk. Liðin okkar eru fyrirmyndir og hefur okkar “meisturum” tekist svo vel að hrífa fólk með sér í gleðinni að við höfum öll á tilfinningunni að við séum meistara. Enda erum við öll meistara, þetta eru okkar lið, okkar fólk og okkar bæjarfélag.

Takk ÍBV og okkar frábærar íþróttafólk, þjálfarar og allir þeir sem koma að félaginu fyrir að gleðja okkur hvað eftir annað. Saman náum við árangri og þessi frábæri árangur, í vetur, er gott veganesti inn í sumarið.
Sem vonandi fer að koma 😊
Áfram ÍBV
Íris Róbersdóttir
bæjarstjóri

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.