Víkin heimsótti VSV
Vik Vsv 25 1000008057
Börnin fylgdust áhugasöm með. Ljósmynd/vsv.is

Víkin – 5 ára deild kom í heimsókn í Vinnslustöðina á fimmtudaginn síðastliðinn. Ástæða þess að þau óskuðu eftir því að fá að koma í heimsókn er sú að þau eru búin að vera að vinna með hafið sem þema í mars. Sagt er frá heimsókninni á vefsíðu Vinnslustöðvarinnar.

Benóný​ Þórisson og ​Helena​ Björk Þorsteinsdóttir tóku á móti ​börnunum í anddyri aðalinngangs VSV og þar klæddu þau sig í skóhlýfar, hárnet og sloppa​. Það þótti þeim agalega spennandi​.

​A​ð sögn Helen​u​ Bjarkar lá leið þeirra​ því næst í sal sem kallast Krókur​. ​,,​Þar fengu þau að sjá þorsk. Hvernig hann ​lítur út nýveiddur, hvernig hann​ kemur inn í hús og svo hvernig hann er unninn, saltaður og þess háttar. ​Gestirnir kvörtuðu​ einhverjir undan lyktinni sem þeim fannst alls ekkert spes.

​Auðvitað var svo skellt í hópmyndat​ök​u.​ Að myndatöku lokinni var farið aftur upp og ​voru börnin kvödd með nammipoka sem þau tóku​ glöð með sér heim.​ Vel heppnað í alla staði og gaman að sjá hvað þau voru áhugasöm, stillt og prúð​,” segir Helena.

Myndasyrpu frá heimsókninni má sjá hér.

Nýjustu fréttir

Maí sól – Lag til ömmustelpurnar
Styrkir veittir til fjölbreyttra verkefna
Neyðarkall úr Eyjum
Sigmundur Davíð með opinn fund
Hæsti styrkurinn til Eyja
Dýptarmæling í dag
Eyjalistinn í sókn: Heimasíða og stefnuskrá líta dagsins ljós!
Vinnandi hendur frá hafi til hátíðarborðs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.