Vinnustaða­náms­sjóður á vegum Rannís
Markmið sjóðsins er að styrkja til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Styrkir til vinnustaðanáms eru veittir á grundvelli ákvörðunar um framlög á fjárlögum hvers árs.
Hverjir geta sótt um?
Rétt til að sækja um styrk eiga fyrirtæki og stofnanir sem uppfylla almenn skilyrði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nemendur í starfsnámi. �?eir skulu hafa á að skipa hæfum tilsjónaraðila sem ber ábyrgð á námi nemanda á vinnustað.
Fyrir hvern?
Fyrirtæki og stofnanir vegna vinnustaðanáms nema í iðnnámi eða öðru námi á framhaldsskólastigi þar sem vinnustaðanám og starfsþjálfun er skilgreindur hluti námsins. Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
Til hvers?
Að stuðla að eflingu vinnustaðanáms og fjölga tækifærum nema til starfsþjálfunar.
Frestur til að sækja um í Vinnustaðanámssjóð er til 15. nóvember 2017, kl. 16:00. Ef þú hefur áhuga getur þú kynnt þér málið hérna.

Nýjustu fréttir

Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Óboðnir gestir undir yfirborðinu
Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.