Wild dogs!
Erlingur Birgir Richardsson, þjálfari West Wien í Austurríki hefur fylgst vel með ÍBV í vetur. Erlingur stendur sjálfur í ströngu en lið hans er komið í undanúrslit í austurrísku úrslitakeppninni, tapaði fyrsta leiknum gegn Raiffeisen Fivers WAT Margareten á útivelli en vinna þarf tvo leiki til að komast í úrslit. Liðin leika á ný í Vín í kvöld. En á sama tíma leika ÍBV og Haukar og Erlingur, sem kom ÍBV upp í 1. deild með Arnari Péturssyni á síðasta tímabili, hefur fylgst mjög vel með gengi ÍBV í vetur. Eyjafréttir hentu á hann nokkrum spurningum í tilefni leiks liðanna í Eyjum í kvöld.
Hefurðu fylgst með framgöngu ÍBV í vetur og svo í úrslitunum?
uhhh…..já…hvers konar spurning er þetta Júlli 🙂
Hvað finnst þér um spilamennsku liðsins?
Já það vill nú svo til að ég er enn þá með aðgang að dropboxinu þar sem þjálfararnir setja inn leiki fyrir leikmenn þannig að ég er nú búinn að ná að fylgjast með þeim í allan vetur. Svo hef ég auðvitað horft á það sem er sýnt í sjónvarpinu.
Hvað varðar spilamennskuna þá er liðið búið að vera í stöðugri framför. Leikmenn hafa verið að bæta sig og svo hafa þjálfararnir verið stöðugt að bæta við vopnabúrið bæði í vörn sem sókn.
Áttir þú von á þessum árangri þegar þú skildir við liðið eftir síðasta vetur?
�?að er nú alltaf erfitt að spá fyrir tímabil hvar liðin gætu endað en ég hafði vonir um eitt af topp 4. �?g hafði trú á því að liðið gæti haldið áfram að bæta sig þar sem þessir strákar hafa mikinn metnað og vilja til að æfa. �?eir höfðu það mikinn metnað til að æfa að þeir byggðu upp sína egin æfingaaðstöðu. Einnig held ég að með tilkomu Gunna M hafi hann og Arnar náð fullkomna þá uppbyggingu á liðinu sem Arnar Pétursson hefur unnið að dag og nótt sl 4 árin. Arnar P og þeir sem voru í stjórn þegar hann kom til Eyja eru svo sannarlega að uppskera eftir óeigingjarnt starf fyrir ÍBV og Vestmannaeyjar….. minnir að það hafi verið Maggi B, Jói G, Daði P, Arnar R, Halli Hannesar, �?la Heiða, Hugrún og Unnur Sigmars…….vonandi gleymi ég ekki neinum:)
Hvað með stemmninguna? Er þetta ekki eins og í gamla daga eða jafnvel betra?
�?að er oft erfitt að átta sig á henni svona í gegnum sjónvarps eða tölvuskjáinn, þess vegna vildi ég nú alveg vera á Eyjunni þessa dagana bara til að fá stemmninguna beint í æð:) En hún hefur allavega vakið mikla athygli og það er svo skemmtilegt að sjá að allir eru að skemmta sér og hafa gaman af þessu.
Hvort hún er lík þeirri sem var í �??gamla daga” er erfitt að dæma um en hún var líka einstök þá. �?g var nú svo heppinn að vera ungur leikmaður að stíga mín fyrstu skref með mfl. þegar Eyjamenn komu fyrstir fram með hljómsveitina Stalla Hú, þá var nú dansað allan tímann. Á bikarleiknum 1991 var t.a. mynda mikil stemmning og svo má nú ekki gleyma leiknum í fjögra liða úrslitum á móti FH árið 1992 þar sem Eyjamenn fylltu Kaplakrikann sem var áhorfendametið í Kaplakrika þangað til í fyrra. Já við Eyjamenn erum alltaf í fararbroddi með alla stemmningu. �?að sem er líka svo skemmtilegt við þetta í dag er að þetta byrjar allt innan frá, frá leikmönnum sjálfum og yngri iðkendum . �?g held að það sé óhætt að segja að strákarnir hafi fengið smjörþefinn af þessu þegar þeir dönsuðu og trölluðu á pöllunum á HM á Spáni fyrir rúmlega ári síðan fyrir íslenska landsliðið, svo eftir var tekið. �?annig stemmningu vildu þeir upplifa sjálfir sem leikmenn og þá er bara best að koma henni á sjálfir:)
Hvernig fer leikurinn á morgun?
Leikurinn fer 29-27 fyrir ÍBV
Ertu með einhver skilaboð til leikmanna liðsins?
Wild dogs……(þeir vita nákvæmlega hvað þetta þýðir 🙂
Áfram ÍBV.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.