Berglind Björg, okkar kona í landsliðinu lék lykilhlutverk í leiknum í dag og átti stórleik í 1-1 jafntefli liðsins við Belgíu.
Stemmingin í stúkunni skilaði sér alla leið heim í stofu til áhorfenda og var alveg magnað að heyra “Áfram Ísland!” “HÚHH” og fleiri íslensk köll úr stúkunni.
Við megum vera stolt af liðinu og okkar konum, leikurinn hefði vel getað endað með stórsigri Íslands sem átti miklu fleiri betri færi á mark mótherjanna.
Trausti Hjaltason var í stúkunni og hafði þetta að segja:
Hrikalega flott stemmning fyrir leik á Fan Zone í miðborg Manchester þar sem Íslendingar yfirtóku svæðið. Það sama má segja um leikinn sjálfan þar sem stemmningin var eins og á heimavelli.
Stelpurnar voru hrikalega flottar og lögðu sig allar fram. Það var gaman að sjá Berglindi skora, maður vissi að hún mundi bæta upp fyrir vítaspyrnuna í fyrri hálfleik sem fór forgörðum. Eftir leik voru stuðningsmenn lengi á vellinum og klöppuðu vel og innilega fyrir stelpunum sem tóku svo víkingaklappið með stuðningsmönnum.
Niðurstaðan 1-1 jafntefli þar sem sigur hefði klárlega verið sanngjarnara. Nú er bara að sækja sigur í næsta leik.
Myndir eru í eigu Trausta Hjaltasonar.
Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst