1. bekkingar fengu hjálma frá Kiwanis
IMG_6075
Frá afhendingunni í morgun. Ljósmynd/aðsend

Í morgun fór fram afhending á reiðhjólahjálmum til handa 1. bekkingum GRV í Hamarsskóla.

Í tilkynningu frá klúbbnum segir að  þetta sé landsverkefni Kiwanishreyfingarinnar, sem staðið hafi frá árinu 2003. En upphafið má rekja til ársins 1990 þegar Kiwanisklúbburinn Kaldbakur á Akureyri hóf að gefa hjálma. Í kjölfarið bættust klúbbar við þangað til þetta var gert að landsverkefni.

„Markmið hjálmaverkefnis Kiwanis hefur frá upphafi verið að stuðla að öryggi barna í umferðinni með því að gefa nemendum í 1.bekk reiðhjólahjálma. Bæta þannig öryggi þeirra í umferðinni og koma í veg fyrir alvarleg slys og óhöpp við hjólreiðar sem er afar vinæl frístundaiðkun auk þess að vera góð samgönguleið. Hjálmarnir nýtast einnig vel við notkun hjólabretta og hjólaskauta.
Aðalstyrktaraðili verkefnisins er Eimskip og færum við þeim bestu þakkir. Einnig er gott samstarf við Eykyndil sem aðstoða við verkefnið hér í Eyjum með því að útbúa hjólaþrautir og stilla hjálmana fyrir börnin. Einnig kemur lögreglan að hjóladeginum og skoðar hjólin og fá börnin límmiða á hjólið, eins og við fullorðnir fáum á bílinn okkar eftir skoðun.
Við þökkum kærlega öllum sem koma að þessu með okkur og óskum öllum slysalausu sumri og farið varlega í umferðinni.“

segir í tilkynningu frá Kiwanisklúbbnum Helgafell. Myndband frá afhendingunni má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

„Þetta hefur verið dans á rósum“ – hættir eftir 50 ára starf
Fær tveggja leikja bann eftir olnbogaatvik gegn FH
Bærinn svarar gagnrýni: Segja starfsánægju hafa aukist síðustu ár
Mugison með tónleika á Skansinum
Eyjagöng fá alþjóðlegan sérfræðing í neðansjávargangagerð til liðs við sig
Umræða skapast um starfsumhverfi hjá Vestmannaeyjabæ
Framkvæmdir hafnar í Miðgerði
Landa fyrir austan
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.