10-12 íbúðir ofan á Klett?
Klettur Fjolbyli Cr 2
Tölvugerð mynd af fyrirhugaðri byggingu.

Á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráðs var tekin fyrir fyrirspurn vegna skipulagsbreytinga við Strandveg 44, þar sem nú stendur söluturninn Klettur.

Fram kemur í skýringum í fylgiskjali að gerð sé tillaga af breytingu á nýtingu á lóð fyrir Strandveg 44. Núverandi hús verður fjarlægt og byggð nýbygging með bílakjallara. Hlutverk jarðhæðar mun haldast óbreytt og verður starfsemin þar áfram tengjast þjónustu og atvinnurekstri. Á annari til fjórðu hæðar verða staðsettar íbúðir. Bílakjallari mun þjóna íbúðum með innkeyrslu frá Skólavegi. Stigahús mun tengja allar hæðir og geta íbúar gengið inní ibúðir frá Strandvegi sem og bílakjallara. Gestir og almenningur geta gengið inn frá Strandvegi. Áætlaður fjöldi íbúða verður á milli 10-12.

Í niðurstöðu segir að ráðið feli skipulagsfulltrúa umsjón með gerð tillögu að breyttu deiliskipulagi Hafnarsvæðis H-1 við Strandveg 44.

Klettur

Nýjustu fréttir

Þrjú íþróttafélög í Eyjum fá rúma milljón úr Hvatasjóði
Spyr hvort Herjólfur III verði varaskip í Eyjum í vetur
Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra enn ókominn
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til vörukynninga
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en verkefnið enn í þróun 
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.