Saxófónn Stebba skó í góðum höndum

„Rétt fyrir tónleika okkar á föstudag afhentu Gísli og Góa okkur í Lúðrasveitinni saxófón Stebba Skó. Óskar Pétur smellti af mynd við tækifærið,“ segir Jarl Sigurgeirsson, stjórnandi sveitarinnar.

„Stefán Sigurjónsson skósmiður eða Stebbi Skó var stjórnandi og félagi Lúðrasveitarinnar um árabil. Hann lést á síðasta ári eftir baráttu við Parkinson sjúkdóminn. Hann var holdgerfingur lúðrasveitarinnar og sinnti starfi sínu sem stjórnandi af sérstakri umhyggju og alúð.

Börn Stefáns mættu rétt fyrir tónleikana og afhentu Lúðrasveit Vestmannaeyja saxfón Stefáns að gjöf. Vilja þau með því heiðra minningu föður síns og láta arfleifð hans sem lifir í Lúðrasveitinni hljóma áfram í gegn um hljóðfæri hans. Þannig verður það hér í kvöld, því saxafónninn er á sviðinu í höndum fyrrverandi nemanda hans Andra Eyvindssonar. Það má því segja að hljómur Stefáns fái að vera með og þannig verður það áfram,“ sagði Jarl.

Á myndinni eru Gísli, Jarl, Ólafur Snorrason og Góa.

Nýjustu fréttir

Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.