Suðurnesjamenn komu á óvart í Eyjum

Sigur Golfklúbbs Suðurnesja gegn Keili í 2. umferð í 1. deild karla í sveitakeppninni í golfi í Vestmannaeyjum í dag kom verulega á óvart. Íslandsmeistaralið Kjalar er með fullt hús stiga eftir tvær umferðir í A-riðli og GS er einnig með 4 stig í B-riðli.Í A-riðli áttust við GKG og GA en sú viðureign endaði 3/2 fyrir GKG. Kjölur og GR léku einnig í A-riðli og þar sigraði Kjölur, 3/2. Kjölur hefur titil að verja í 1. deild og hafa Mosfellingar sigrað í báðum viðureignum sínum til þessa líkt og GKG. GR og GA hafa tapað báðum leikjum sínum í A-riðli. GKG og Kjölur eigast við í fyrramálið en þessi lið gætu samt sem áður leikið til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn á sunnudag. Í B-riðli hafði Setberg betur gegn GV, 3/2, og 3/2 sigur GS gegn Keili kom 3/2-sigur Suðurnesjamanna verulega á óvart. Staðan í A-riðli er þannig: Kjölur 8 vinningar og 2 tapleikir. 4 stig GKG 6 vinningar 4 tapleikir. 4 stig GR 4 vinningar og 6 tapleikir. 0 stig. GA 2 vinnigar og 8 tapleikir. 0 stig. Staðan í B-riðli er þannig: GS 7 vinningar og 3 tapleikir. 4 stig. Keilir 5 vinningar og 5 tapleikir 2 stig. GSE 5 vinningar og 5 tapleikir. 2 stig. GV 3 vinningar og 8 tapleikir. 0 stig. Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að fjórir kylfingar úr hverri sveit leika í hverjum leik. Tveir tvímenningsleikir og einn fjórmenningsleikur. Í tvímenning (singles) mætast einn kylfingur úr hvoru liði. Sá kylfingur sem er með fleiri vinninga eftir 18 holur vinnur sitt einvígi. Fjórmenningur er leikinn þannig að tveir keppendur eru saman í liði og slá þeir einn bolta til skiptis. Keppendur slá upphafshöggin til skiptis, óháð því hvaða kylfingur púttaði síðast á flöt. Betra skor hvers liðs á hverri holu telur í holukeppni á milli liða. Keppt er í tveimur riðlum á föstudag og laugardag, en síðdegis á laugardag er leikið krossspil á milli riðla og geta því tvö lið úr sama riðli leikið til úrslita á sunnudeginum. Tvö neðstu liðin falla í 2. deild og geta þau einnig verið úr sama riðlinum. 2. deild karla er leikinn á Hellu. Úrslit dagsins: A-riðill GHR- GÓ 3/2 GÖ – GSS 2/3 GHR – GSS 3/2 GÓ – GÖ 2/3 B-riðill GL – GJÓ2/3 GOS – NK 2/3 GL – NK 4/1 GOS – GJÓ 3/2

Nýjustu fréttir

Áform um fjórar nýjar íbúðir við Sólhlíð
Suðureyingar taka við keflinu á Lundaballinu
Óbætanlegt efnahagstjón verði þróuninni ekki snúið við
Gul viðvörun vegna austanstorms á Suðurlandi á morgun
Binni Unnars skipstjóri - Á einni skrúfu í gegnum erfitt vor 
Ein ferð til Landeyjahafnar – ný tilkynning klukkan 11
Lundasumarið 2026
Hvað ef eitt lítið skref gæti haft stór áhrif?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.