Ályktun Vinstri grænna um samgöngur milli lands og Eyja

Stjórnir Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs í Vestmannaeyjum og kjördæmisráðs Suðurkjördæmis telja að samgöngur við Vestmannaeyjar séu komnar í mikið óefni. Þar sem samgöngur eru ein mikilvægasta forsenda fyrir búsetu og framfarir í Vestmannaeyjum verður ríkisvaldið nú þegar að grípa til ráðstafana til þess að koma samgöngum í það horf að fullnægjandi sé. Vinstri græn líta svo á að það sé fortakslaus skylda hins opinbera að tryggja fullnægjandi samgöngur milli lands og Eyja rétt eins og opinbert vegakerfi gerir samgöngur annars staðar mögulegar. Í þessu sambandi eru þrjú meginverkefni mikilvægust.Að nú þegar verði nýr Herjólfur fenginn til að leysa núverandi skip af hólmi á leiðinni Vestmannaeyjar – Þorlákshöfn, skip sem fullnægir flutningsþörfinni og fari 3 ferðir á sólarhring. Þá ítreka Vinstri græn að sjóleiðin milli lands og Eyja er þjóðvegur og verður að miða gjaldskrá með Herjólfi við þá staðreynd. Ákvörðun um nýtt skip þolir ekki bið og er óháð því hvort ráðist verður í gangnagerð eða hafnarmannvirki við og í Bakkafjöru. Að stjórnvöld láti skilyrðislaust og nú þegar klára þær nauðsynlegu rannsóknir sem þarf til að byggja á ákvarðanir um jarðgöng til Vestmannaeyja sem samgöngubót til framtíðar. Þar dugir ekki, eins og gert er í nýútkominni skýrslu, að byggja á gömlum upplýsingum og ónógum rannsóknum og hafna göngum á þeim forsendum. Ef göng eru möguleg eru þau ótvírætt besti kosturinn og hagkvæmastur til lengri tíma litið (30 til 50 ár). Að rannsóknum í og við Bakkafjöru verði haldið áfram og flýtt svo unnt sé að meta þá samgönguleið og jafnframt þann kostnaði sem af hafnargerð og samgöngumannvirkjum þar hlýst. Þegar nauðsynlegum rannsóknum er lokið á mögulegum jarðgöngum og höfn í Bakkafjöru eru fyrst komnar forsendur til að meta hvaða leið verður valin í framtíðarsamgöngum við Vestmannaeyjar. Vinstri græn ítreka fyrri samþykktir sínar um nauðsyn þess að koma aftur á öflugum strandsiglingum umhverfis landið. Með þeim væri sannarlega unnt að bæta stöðu landsbyggðarinnar í samgöngum og vöruflutningum. Vestmannaeyjum 31. júlí 2007 Stjórn Vinstri grænna í Vestmannaeyjum Stjórn kjördæmisráðs Vinstri grænna í Suðurkjördæmi

Nýjustu fréttir

Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Norlandair með lægsta tilboð í flug til Eyja
„Hörkufiskirí”
Gular viðvaranir í öllum landshlutum
Viðburðaríkir og skemmtilegir fjölgreindarleikar

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.